22. apríl 2010

Horft um öxl

Það hefur verið fastur liður í lífi okkar flestra, ef ekki allra, á einhverjum tímapunkti að setjast reglulega fyrir framan sjónvarpið og fylgjast með ævintýrum þeirra sem á skjánum birtast, hvort sem það er Homer Simpson, Fox Mulder, Mike Scofield, feiti homminn úr Survivor, Michelangelo, Dúa, Ross Geller, steinþursunum eða Simon Cowell. Sú hefð lifir að vissu leyti áfram, þó svo gjarnan sé búið að skipta út sjónvarpinu fyrir tölvuskjá og 'reglulega' fyrir 'hvenær sem er'.
Allir hafa átt sér sína uppáhaldsþætti og uppáhaldspersónur og vissulega hafa sjónvarpsþættirnir haft áhrif á okkur öll.

Sem færir mig að efni þessa bloggs. Hér er ég búinn að útbúa lista með 6 átakanlegustu atriðum sem ég hef séð í sjónvarpsþáttum. Taka skal fram að með 'átakanlegum atriðum' á ég við atriði sem hafa snortið mig meira en venja er.

Ég hef, af öryggisástæðum, útvegað mér örlítið hjálpartæki svo ég skemmi ekki fyrir lesendum ef ske kynni að þeir hafi ekki séð viðkomandi atriði. Þannig hef ég raðað sjónvarpsþáttaröðunum frá 6 og upp í 1, en til að sjá nánari lýsingu á atriðinu sjálfu, þarf einfaldlega að ýta á "Sýna".

Þannig að ef þið hafið ekki séð alla þætti viðkomandi þáttaraðar og haldið að þið eigið eftir að horfa á þá, þá mæli ég gegn því að smella á sýna, þar sem þetta eru ekkert síður nýir þættir en gamlir!


Nú haldið þið áfram á eigin ábyrgð!

Nr. 6: The Big Bang Theory:

The Big Bang Theory eru án nokkurs vafa einir bestu grínþættir síðustu ára og er það að miklu leyti afar góðri persónusköpun að þakka. Hver hefur ekki horft á sjónvarpsþætti eða bíómynd og hugsað: "Vá, þessi gaur gæti alveg verið skotinn núna og mér væri algjörlega sama"? Hinir elskulegu nördar og dama í þessum þáttum falla ekki í þann flokk. Einna elskulegastur er Leonard, sem er svo yndislega ástfanginn af nágranna sínum, gellunni Penny. Þegar þau loksins byrjuðu saman kættist hjartað í mér mjög en eins og í öllu góðu sjónvarpsefni þá koma upp vandræði í paradís. Þegar Will fokking Wheaton fer að skipta sér af og fær Penny til að segja Leonard greyinu upp, þá var mér öllum lokið.
Þið sjáið bara sorgina - og treystið mér, ég var ekkert mikið hressari þar sem ég sat í náttfötunum og horfði í hryllingi á. En ég trúi ekki öðru en að vel fari... en það verður bara að koma í ljós á næstu vikum.



Nr. 5: Scrubs:

Ég bar mjög blendnar tilfinningar til þessa lokaatriðis Scrubs seríanna (ég tel 9. seríu ekki með - hún er eitthvað allt annað dæmi).Þar stendur J.D. á tröppum Sacred Heart og horfir á framtíð sína með Peter Gabriel í bakgrunni. Það er bara eitthvað svo hjartnæmt og fallegt við þetta atriði að ég var nánast klökkur. En á sama tíma var ég afskaplega sorgmæddur, vitandi það að þessir stórkostlegu grínþættir voru við það að klárast (aftur - ég tel 9. seríu ekki með!).
Gullfallegt, alveg.



Nr. 4: Friends:

Það þekkja allir Friends og vel flestir hafa horft á alla þættina, oftar en einu sinni, og þeir vita það vel að Friends eru uppfullir af fallegum og hjartnæmum atriðum. En það er eitt atriði sem hefur alltaf farið meira í mig en önnur. Það er þegar Chandler er staddur á bar með Joey og nýju kærustunni hans, henni Kathy.
Æjh... Kathy.
Anyways - þegar Chandler gjörsamlega hellir hjarta sínu á gólfið fyrir framan Joey um hve mikið hann sé ástfanginn af Kathy, það gefur hjartanu mínu hnéspark í punginn. Ég finn svo til með honum að það er engan veginn fyndið - en þá er ég ekki að segja að ég hafi lent í þessu sama. Bara að taka það fram.
En já - klárlega sársaukafyllsta atriði Friends sögunnar.



Nr. 3: Californication:

Fokksjitt - við erum kominn út djúpan pakka núna. Afar hollt svona seint á kvöldin...
Lokaatriði þriðju seríu Californication er hardcore dæmi. Og þá meina ég hardcore.
Þessar rúmar þrjár mínútur sem "Rocket Man" með Elton John hljómar undir játningu dauðans eru fáránlega magnaðar. Og rétt þegar maður heldur að það versta sé afstaðið, þá hleypur Becca af stað á eftir pabba sínum þar sem honum er troðið inn í lögreglubíl.
Og alltaf syngur Elton John, hress og kátur.
Contrastinn er ógeðslega flottur.


Nr. 2: Scrubs:

Já, það er annað Scrubs atriði á listanum og ótrúlegt en satt - öllu þyngra en lokaatriðið.
Í 20. þætti 5. seríu flagga þau öllu sem hægt er og toga í alla spotta sem tengjast á einhvern hátt sálartetrinu mínu. Aftur er þetta eins og hádramatískt tónlistarmyndband, nema að þessu sinni "How to Save a Life" með The Fray. Hérna á ég auðvitað við atriðið þegar sjúklingarnir þrír deyja vegna mistaka Dr. Cox. Það er sárt þegar maður horfir upp á þá fyrstu tvo deyja, en þegar sá þriðji gefur upp öndina og Cox fríkar út...
...Vó.
Ég táraðist yfir þessu - og klökkna enn.


Nr. 1: Dexter:

Djöfulsins fokking fokksjitt helvíti?!?!?

1 ummæli:

  1. Já. Ég viðurkenni það. Ég er ein af þessum týpísku stelpum sem horfir á Grey's Anatomy. Fyrst fannst mér ekkert til þess koma en eftir að hafa horft á allt heila klabbið á votviðrisdögum í DK, þá viðurkennist það hér með frekar að ég hef grátið yfir nánast hverjum einasta þætti.

    En ég var nú líka gosbrunnur í fyrra lífi.

    SvaraEyða

Hvað liggur þér á hjarta?